Kaffi Loki

Íslenskur heimilismatur í sérflokki

Kaffi Loki er rótgróið fjölskyldufyrirtæki á besta stað í hjarta Reykjavíkur. Við erum efst á Skólavörðuholtinu, ská á móti Hallgrímskirkju og Listasafni Einar Jónssonar.

Hjá okkur færð þú ekta heimagerðan íslenskan mat sem er eldaður á staðnum með bestu mögulegu hráefnum. Við bjóðum góða þjónustu, góð verð og vinalegt andrúmsloft.

 
_MG_5761.jpg
_MG_5774.jpg
_MG_5727.jpg

Þjóðlegur matur í Öndvegi

Er nokkuð betra en rjúkandi kjötsúpa, ferskur fiskur eða ljúffengur plokkari? Komdu við hjá okkur í hádeginu eða skelltu þér út að borða í kvöld og upplifðu ánægjulega kvöldstund í rólegu umhverfi.

Við hlökkum til að sjá þig!

1.jun 2012 015.JPG

Nóg af sætum, inni sem úti

Kaffihús Kaffi Loka er á tveimur hæðum en einnig er hægt að sitja úti sé veðrið gott. Kjörin staðsetning fyrir vinahópinn eða vinnufélagana til að hittast og njóta stundarinnar saman yfir góðum mat.

IMG_0937.jpg

Útsýnið af Kaffi Loka er með því betra í bænum

Útsýnið okkar er stórbrotið enda blasir Hallgrímskirkja við og Listasafn Einars Jónsonar er einnig handan við götunnar. Líklega fátt betra en að njóta menningarinnar í miðbænum, skola henni svo niður með rjúkandi kaffi og rjómapönnuköku.